2. febrúar 2013 opnaði sýning í Hofi með málverkum Guðbjargar. Þetta eru 20 málverk og eru flest þeirra máluð árið 2012. Viðfangsefnið eru íslensku útsaumsmynstrin af kven-þjóðbúningnum líkt og undanfarin ár. Í sýningarskrá segir:
Um verkin mín.
Málverkin mín fjalla um lífið og tilfinningar. Lífið og listina. Lífið og handverkið.
Með vísan í gamlan útsaum – gamalt handverk – segi ég sögur úr lífinu. Ég er einnig að upphefja gamalt handverk og minna okkur á að gleyma aldrei upprunanum – arfinum sem okkur hefur verið trúað fyrir.
Hér taka íslensk útsaumsmunstur af þjóðbúningum kvenna á sig ýmsar myndir á striganum. Þau hafa fengið nýtt hlutverk með nýrri tækni. Ýmist standa þau ein og sér eða hrúgast saman í hóp. En í hverjum hópi má alltaf finna einhvern einn sem sker sig úr, – fer sínar eigin leiðir. Frelsisþráin kemur einnig við sögu – löngunin til að slíta sig úr viðjum vanans.
Sýningin stendur til 1. maí 2013.
[nggallery id=1]